Mín nálgun:
Ég veit að þetta er vandað val, því brúðkaupsdagurinn er með þeim stærri og eftirminnilegri dögum á lífsleiðinni. Ég ber mikla virðingu fyrir því, og legg því sál mitt og hjarta í því að ná öllu sem skiptir mestu máli yfir daginn. "The moments" ef ég mætti ''enska'' smá. Ég byrjaði að mynda brúðkaup fyrir 5 árum, og stíllinn sem ég er þekktur fyrir er kallaður "Documentary Wedding Photography", sem gerir það að verkum að ég reyni sem minnst að hafa áhrif á gangi mála yfir daginn, og smelli myndum af hráum augnablikum eíns og þau gerast.
Mín ráð til ykkar: Mikilvægt er að vanda valið á ljósmyndara , kanna markaðinn vel, hvað er í boði og vert er að hafa í huga hvort stíll ljósmyndarans er það sem þið eruð að leitast eftir.
Reynsla er ansi mikilvæg, og ég hef tekið að mér tugi brúðkaupa síðastliðin ár við allskonar aðstæður og allsskyns veðri. Hvort sem það eru inni- eða útibrúðkaup, á fallegum íslenskum sumardegi eða á köldum vetrakvöldi, og tel mig því vera með þokkalega reynslu að því gefnu.
Ef þið hafið áhuga þá myndi ég endilega vilja hitta ykkur yfir kaffibolla og kynnast hvort öðrum betur.
Hlakka til að heyra frá ykkur.
Marko P.